Brief Problem Monitor (BPM) eru nýir matslistar ásamt hugbúnaði sem verið hafa í þróun hjá ASEBA. Þeir eru ætlaðir til notkunar við framvindu- og árangursmælingar við íhlutun og meðferð.
Listarnir eru ætlaðir fyrir foreldra (BPM-P), kennara (BPM-T) og unglinga (BPM-Y) og tekur um 1-2 mínútur að svara þeim. Niðurstöður raðast á fjóra þætti, líðan, athygli-og einbeitingarvandi, hegðun og heildarerfiðleikar. Spurningar og þættir eru hliðstæð CBCL, TRF og YSR og gefa notendum möguleika til að nýta þau svör við mat á íhlutun.
Framsetning niðurstaðna er grafísk, s.s. samanburðarmyndir og ferlirit. Hægt að nota fyrirliggjandi íslensk viðmið og viðmið annarra þjóða eftir því sem við á.
Nánari upplýsingar er í meðfylgjandi bæklingi og hjá ASEBA á Íslandi.